Nýjar niðurstöður mælinga við strandlengjuna

Heilbrigðiseftirlit

""

Bráðabirgðaniðurstöður úr sýnatöku Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur í gær eru í samræmi við niðurstöður undanfarinna daga en athygli vekur há gerlatala í Nauthólsvík.

Allar líkur eru á að þetta sé einstakt tilfelli en Heilbrigðiseftirlitið getur þó ekki mælt með sjósundi í dag og biður fólk um að fylgjast með niðurstöðum sem verða birtar á heimasíðu Reykjavíkurborgar.

Rétt er að taka fram að einungis er um eitt sýni að ræða en sýnataka var endurtekin í dag og verða niðurstöður birtar á morgun, laugardaginn 15. júlí, eða um leið og þær berast.  Þetta eru aðrar niðurstöður í Nauthólsvík en verið hefur og náið verður fylgst með þróun þar.

Niðurstöður fyrir Nauthólsvík  nú eru ekki í samræmi við aðrar niðurstöður frá sýnatökustöðum í nágrenninu og til samanburðar er bent á að gerlafjöldi á sýnatökustað við enda flugbrautar er 1/100ml.

Niðurstöður mælinga við strandlengjuna.

Vöktun strandlengjunnar við Faxaskjól, Ægissíðu, Skeljanes og Nauthólsvík.

Reglugerð um baðstaði í náttúrunni