Lokanir hjá Reykjavíkurborg vegna hátíðahalda 19. júní

Velferð Umhverfi

""

Á morgun verða hátíðahöld víða um borgina til að minnast þess að hundrað ár eru nú liðin frá því að konur fengu kosningarétt. Hjá Reykjavikurborg hefur starfsmönnum verið gefið frí frá hádegi.

Leikskólar, félagsmiðstöðvar, frístundaheimili og frístundaklúbbar verða lokaðir eftir klukkan 12.00.
Þjónustuver Reykjavíkurborgar lokar klukkan 12 en opið verður í símaverinu til 16.15.

Lokað verður hjá matvælaeftirliti, hundaeftirliti, byggingarfulltrúa og heilbrigðiseftirliti en símavakt heilbrigðiseftirlitsins verður opin.
Upplýsingamiðstöð ferðamanna, Árbæjarsafn, Landnámssýningin, Sjóminjasafnið, Kjarvalsstaðir, Hafnarhús og Ásmundarsafn verða opin að venju.

Starfsfólk sorphirðunnar verður starfandi, ákveðinn hópur á hverfastöðvum, þeir sem sinna öryggisþjónustu s.s. umferðarljósaeftirlit ofl.

Fjölskyldugarðurinn verður lokaður frá 13.00-18.00
Sundlaugarnar verða opnar.

Skrifstofur Reykjavíkurborgar í Ráðhúsinu og í Höfðatorgi 12 – 14 verða lokaðar frá klukkan 12.00