Fyrsta skóflustungan að einu stærsta byggingarverkefni í miðborginni

Framkvæmdir Mannlíf

""

Dagur B. Eggertsson, borgarstjóri í Reykjavík, Helgi S. Gunnarsson forstjóri Regins, Gísli Steinar Gíslason og Guðni Rafn Eiríksson fyrir hönd Landstólpa þróunarfélags, tóku fyrstu skóflustunguna vegna upphafs framkvæmda við reit 1 og 2 við Austurbakka í Reykjavík í dag.

Fyrirhugaðar framkvæmdir eru hluti af stærsta byggingaverkefni fram til þessa í hjarta Reykjavíkur. Samkvæmt deiliskipulagi má byggja á reitum 1 og 2 við Austurbakka,  21.400 m2  ofanjarðar. Áætlað er að þar verði íbúðir og fjölbreytt húsnæði fyrir ýmsa  atvinnustarfsemi, s.s. verslanir, veitingahús, skrifstofur og þjónustu. Auk þess verður byggður bílakjallari á reitnum sem verður samtengdur öðrum bílakjöllurum á lóðinni, allt að Hörpu.  Áætlað að sameiginlegur kjallari rúmi um 1.000 bíla.

Framkvæmdaraðili er Landstólpar þróunarfélag og er áætlað að framkvæmdum á reitnum ljúki haustið 2018.