Fjárfest í skólum, nýjum borgargötum og endurnýjun malbiks

Framkvæmdir Fjármál

""

Í frumvarpi að fjárhagsáætlun fyrir 2017 er farið yfir fjárfestingar eignasjóðs sem heldur utan um allar eignir Reykjavíkurborgar.  Borgin mun fjárfesta fyrir  rúma 14 milljarða króna á næsta ári.

Í mörg horn er að líta í fjárfestingaverkefnum hjá Reykjavíkurborg enda er borgin í örri þróun og bæði verið að þétta byggð og bæta við nýbyggingahverfum eins og í Úlfarsárdal, Hlíðarenda, Kirkjusandi og Vesturbugt.  Borgin mun því leggja 5,5 milljarða króna í ýmsar gatnaframkvæmdir á þessu ári. Þar af verða lagðir tæpir 1,8 milljarðar króna í götur í nýbyggingarhverfum.

Hátt í tveir milljarðar í mannvirki í Úlfarsárdal

Borgin fjárfestir fyrir 6,2 milljarða króna í nýbyggingum á næsta ári. Þar er langstærsta verkefnið nýr skóli og menningarhús í Úlfarsárdal en í það verkefni eru áætlaðar 1.750 mkr.  Þá verða  lagðar 900 mkr. í viðbyggingu og breytingar á Klettaskóla og 300 mkr. í viðbyggingu og breytingar á Vesturbæjarskóla. 

Ráðist verður í endurbyggingu skólalóða fyrir 300 mkr.. 

Útilaug við Sundhöllina kláruð

Í íþrótta og tómstundamálum ber hæst að útilaugin við Sundhöll Reykjavíkur verður kláruð en til þess verkefnis fara 770 mkr.  Einnig verður  ráðist í gerð frjálsíþróttavallar í Suður-Mjódd sem ÍR mun reka en í það fara 300 mkr. Gervigras verður endurnýjað fyrir 185 milljónir, m.a. í boltagerðum víða um borg. 

Í menningarmálum ber hæst að haldið verður áfram með byggingu viðbyggingar við borgarbókasafnið í Grófarhúsi fyrir 70 mkr.  Sjóminjasafnið fær 50 milljónir til endurbóta  og búnaður í Borgarleikhúsi verður endurnýjaður fyrir 46 mkr.

Í velferðarmálum verður ráðist í framkvæmdir við hjúkrunarheimili við Sléttuveg en framlag borgarinnar þar verður 181 mkr. á næsta ári.

Þá munu breytingar á Perlunni kosta um 100 mkr en þar stendur til að koma upp viðamikilli og spennandi sýningu um náttúru Íslands.

Gatnakerfi nýbyggingarsvæða og miðborgar

Miklar fjárfestingar verða í gatnakerfi á nýbyggingarsvæðum. Þannig eru 500 mkr. áætlaðar í gatnakerfi á Hlíðarenda og 250 kr. í Vogabyggð-Elliðaárvogi.

400 milljónir eiga að fara í breytingar á Geirsgötu og Lækjargötu auk þess sem 100 milljónir fara í endurgerð Hafnarstrætis en þar er verið að byggja hótel en hluti af því verður nýtt straujárnslagað hús.

Þá eru áætlaðar 92 mkr. í Vigdísartorg við nýbyggingu stofnunar Vigdísar Finnbogadóttur við Suðurgötu.

Fjármagn til malbikunar tvöfaldað

Áætlað er að fara í viðamikið átak í malbikun gatnakerfisins í Reykjavík á næstu árum en Reykjavíkurborg er með 420 km af götum sem þarf að halda við. Árið 2017 verður varið 1.460 mkr, til viðgerða og endurnýjunar á malbiki í Reykjavík sem eru meiri fjármunir en nokkru sinni áður. Um er að ræða ríflega tvöföldun frá árinu 2016 en þá var aukið verulega við fé til malbikunar.

Frumvarp að fjárhagsáætlun 2017