Vin dagsetur
Félagsstarf
Hverfisgata 47
101 Reykjavík
Starfsemi
Vin dagsetur á Hverfisgötu 47 er félagsmiðstöð fyrir fólk sem þarf stuðning til að tengjast öðrum félagslega.
Áhersla er lögð á virkniörvun og þátttöku í daglegu lífi. Boðið er upp á fjölbreytt félagsstarf, meðal annars skák, ferðir, listastarf og ýmsa klúbba.
Opnunartími
Starfsemin er opin virka daga kl. 9:00–16:00 og félagsstarf fer fram kl. 10:00–15:30.
Strætó
Strætóleiðir 2, 6, 11, 12, 13 og 14 stoppa við Bíó Paradís, skammt frá Vin.