Tillaga að starfsleyfi - Veitur ohf. - Barónsstígur 45 (Aðveitustöð 1) - Spennistöð
Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur hefur unnið tillögu að starfsleyfi fyrir Veitur ohf. að Barónsstíg 45 vegna endurnýjunar starfsleyfis. Um er að ræða spennistöð. Í tillögunni er lagt til að um starfsemina gildi almenn starfsleyfisskilyrði heilbrigðisnefndar Reykjavíkur fyrir mengandi starfsemi. Lagt er til að gildistími verði 12 ár. Gögn vegna tillögunnar eru aðgengileg á vef Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur https://reykjavik.is/tillogur-ad-starfsleyfi-i-auglysingu á tímabilinu 3. febrúar - 3. mars 2025. Á þeim tíma er öllum heimilt að senda inn athugasemdir og ábendingar við tillöguna. Athugasemdir skulu vera skriflegar og sendar Heilbrigðiseftirliti Reykjavíkur, Borgartúni 12-14, 105 Reykjavík eða með tölvupósti á netfangið heilbrigdiseftirlit@reykjavik.is.