Tillaga að starfsleyfi - Titan 1

Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur hefur unnið tillögu að starfsleyfi fyrir Titan 1 á Viðarhöfða 3 vegna nýrrar starfsemi. Um er að ræða smurstöð, bifreiða- og vélaverkstæði og hjólbarðaverkstæði. Í tillögunni er lagt til að um starfsemina gildi almenn starfsleyfisskilyrði heilbrigðisnefndar Reykjavíkur fyrir mengandi starfsemi, samræmd starfsleyfisskilyrði fyrir smurstöðvar, samræmd starfsleyfisskilyrði fyrir bifreiðaverkstæði og skyldan rekstur og samræmd starfsleyfisskilyrði fyrir hjólbarðaverkstæði. Lagt er til að gildistími verði 12 ár. Gögn vegna tillögunnar eru aðgengileg á vef Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur https://reykjavik.is/tillogur-ad-starfsleyfi-i-auglysingu á tímabilinu  17. ágúst - 14. september 2023. Á  þeim tíma er öllum heimilt að senda inn athugasemdir og ábendingar við tillöguna. Athugasemdir skulu vera skriflegar og sendar Heilbrigðiseftirliti Reykjavíkur, Borgartúni 12-14, 105 Reykjavík eða með tölvupósti á netfangið heilbrigdiseftirlit@reykjavik.is.