Stálsmiðjan-Framtak ehf. - Ægisgarður 1 og 7

Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur hefur unnið tillögu að starfsleyfi fyrir Stálsmiðjuna-Framtak ehf. við Ægisgarð 1 og 7 vegna endurnýjunar starfsleyfis. Um er að ræða skipasmíði og skipaviðgerðir. Í tillögunni er lagt til að um starfsemina gildi almenn starfsleyfisskilyrði heilbrigðisnefndar Reykjavíkur fyrir mengandi starfsemi og sértæk starfsleyfisskilyrði fyrir Stálsmiðjuna-Framtak ehf. (kt: 430801-2520) á athafnasvæði að Ægisgarði 1 og 7. Lagt er til að gildistími verði 12 ár. Gögn vegna tillögunnar eru aðgengileg á vef Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur https://reykjavik.is/tillogur-ad-starfsleyfi-i-auglysingu á tímabilinu 11.10.23 til 08.11.23. Á  þeim tíma er öllum heimilt að senda inn athugasemdir og ábendingar við tillöguna. Athugasemdir skulu vera skriflegar og sendar Heilbrigðiseftirliti Reykjavíkur, Borgartúni 12-14, 105 Reykjavík eða með tölvupósti á netfangið heilbrigdiseftirlit@reykjavik.is