Tillaga að starfsleyfi - Sirkustjaldið Jökla (útihátíð) í Vatnsmýri
Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur hefur unnið tillögu að starfsleyfi fyrir Sirkus Íslands ehf. í Vatnsmýri vegna tímabundins starfsleyfis. Um er að ræða útihátíð, starfsemi í sirkustjaldi. Í tillögunni er lagt til að um starfsemina gildi Starfsleyfisskilyrði Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur fyrir Sirkustjaldið Jökla við Vatnsmýrarveg frá 11. júlí til 20. júlí 2025. Lagt er til að gildistími verði 11.07.2025 - 20.07.2025. Gögn vegna tillögunnar eru aðgengileg á vef Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur https://reykjavik.is/auglysing-starfsleyfa-samkvaemt-reglugerd-nr-9032024 á tímabilinu 27.05.2025 til 24.06.2025. Á þeim tíma er öllum heimilt að senda inn athugasemdir og ábendingar við tillöguna. Athugasemdir skulu vera skriflegar og sendar Heilbrigðiseftirliti Reykjavíkur, Borgartúni 12-14, 105 Reykjavík eða með tölvupósti á netfangið heilbrigdiseftirlit@reykjavik.is.