Tillaga að starfsleyfi - Shimmer (snyrtistofa og kennslustaður) að Skyggnisbraut 15
Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur hefur unnið tillögu að starfsleyfi fyrir Shimmer ehf að Skyggnisbraut 15 vegna nýs starfsleyfis. Um er að ræða snyrtistofu og kennslustað fyrir naglafræði. Í tillögunni er lagt til að um starfsemina gildi samræmd starfsleyfisskilyrði fyrir snyrtistofur og skylda starfsemi og samræmd starfsleyfisskilyrði fyrir skóla og kennslustaði ætluð börnum eða fullorðnum 6 eða fleiri. Lagt er til að gildistími verði 12 ár. Gögn vegna tillögunnar eru aðgengileg á vef Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur á tímabilinu 22. maí til 19. júní 2025. Á þeim tíma er öllum heimilt að senda inn athugasemdir og ábendingar við tillöguna. Athugasemdir skulu vera skriflegar og sendar Heilbrigðiseftirliti Reykjavíkur, Borgartúni 12-14, 105 Reykjavík eða með tölvupósti á netfangið heilbrigdiseftirlit@reykjavik.is.