Tillaga að starfsleyfi - Ræktunarsamband Flóa og Skeiða ehf. jarðboranir á Brimnesi á Kjalarnesi

Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur hefur unnið tillögu að starfsleyfi fyrir Ræktunarsamband Flóa og Skeiða ehf. á Brimnesi á Kjalarnesi sbr. nánari staðsetningu í fylgigögnum vegna nýrrar starfsemi. Um er að ræða jarðborun á tveimur borteigum, starfsmannaaðstöðu með salernum og olíugeyma til eigin nota. Í tillögunni er lagt til að um starfsemina gildi almenn starfsleyfisskilyrði heilbrigðisnefndar Reykjavíkur fyrir mengandi starfsemi og Starfsleyfisskilyrði fyrir Ræktunarsamband Flóa og Skeiða ehf. vegna jarðborana á Kjalarnesi. Lagt er til að gildistími verði til 31. desember 2024. Gögn vegna tillögunnar eru aðgengileg á vef Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur https://reykjavik.is/tillogur-ad-starfsleyfi-i-auglysingu á tímabilinu 25. júlí til 22. ágúst 2024. Á  þeim tíma er öllum heimilt að senda inn athugasemdir og ábendingar við tillöguna. Athugasemdir skulu vera skriflegar og sendar Heilbrigðiseftirliti Reykjavíkur, Borgartúni 12-14, 105 Reykjavík eða með tölvupósti á netfangið heilbrigdiseftirlit@reykjavik.is