Tillaga að starfsleyfi - Padre (skyndibitastaður) að Laugavegi 30
Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur hefur unnið tillögu að starfsleyfi fyrir Padre, Hotland pizza ehf. að Laugavegi 30, vegna eigendaskipta. Um er að ræða veitingastað; skyndibitastað. Í tillögunni er lagt til að um starfsemina gildi starfsleyfisskilyrði fyrir samkomustaði. Lagt er til að gildistími verði 12 ár. Gögn vegna tillögunnar eru aðgengileg á vef Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur https://reykjavik.is/auglysing-starfsleyfa-samkvaemt-reglugerd-nr-9032024 á tímabilinu 23. maí til 20. júní 2025. Á þeim tíma er öllum heimilt að senda inn athugasemdir og ábendingar við tillöguna. Athugasemdir skulu vera skriflegar og sendar Heilbrigðiseftirliti Reykjavíkur, Borgartúni 12-14, 105 Reykjavík eða með tölvupósti á netfangið heilbrigdiseftirlit(hjá)reykjavik.is.