Tillaga að starfsleyfi - Orkan IS ehf., bensínstöð að Skógarhlíð 16

Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur hefur unnið tillögu að starfsleyfi fyrir Orkuna IS ehf. við Skógarhlíð 16 vegna endurnýjunar starfsleyfis. Um er að ræða bensínstöð með sjálfsafgreiðslu. Í tillögunni er lagt til að um starfsemina gildi Almenn starfsleyfisskilyrði heilbrigðisnefndar Reykjavíkur fyrir mengandi starfsemi og Starfsleyfisskilyrði heilbrigðisnefndar Reykjavíkur fyrir bensínstöðvar. Lagt er til að gildistími verði 12 ár. Gögn vegna tillögunnar eru aðgengileg á vef Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur https://reykjavik.is/tillogur-ad-starfsleyfi-i-auglysingu á tímabilinu 17. desember 2024 til 14. janúar 2025. Á  þeim tíma er öllum heimilt að senda inn athugasemdir og ábendingar við tillöguna. Athugasemdir skulu vera skriflegar og sendar Heilbrigðiseftirliti Reykjavíkur, Borgartúni 12-14, 105 Reykjavík eða með tölvupósti á netfangið heilbrigdiseftirlit@reykjavik.is