Olíudreifing ehf. - Hólmaslóð 8 og 10

Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur hefur unnið tillögu að starfsleyfi fyrir Olíudreifingu ehf. að Hólmaslóð  8 og 10 vegna endurnýjunar starfsleyfis. Um er að ræða rekstur smurstöðvar, bifreiða- og vélaverkstæðis, hjólbarðaverkstæði og vélsmiðju og vélaviðgerða. Í tillögunni er lagt til að um starfsemina gildi almenn starfsleyfisskilyrði heilbrigðisnefndar Reykjavíkur fyrir mengandi starfsemi, samræmd starfsleyfisskilyrði fyrir smurstöðvar, samræmd starfsleyfisskilyrði fyrir bifreiða- og vélaverkstæði, samræmd starfsleyfisskilyrði fyrir hjólbarðaverkstæði og samræmd starfsleyfisskilyrði fyrir málmsmiðjur (járn-, stál-, ál-, og blikksmiðjur). Lagt er til að gildistími verði 12 ár. Gögn vegna tillögunnar eru aðgengileg á vef Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur https://reykjavik.is/tillogur-ad-starfsleyfi-i-auglysingu á tímabilinu 28. nóvember til 28. desember 2023. Á  þeim tíma er öllum heimilt að senda inn athugasemdir og ábendingar við tillöguna. Athugasemdir skulu vera skriflegar og sendar Heilbrigðiseftirliti Reykjavíkur, Borgartúni 12-14, 105 Reykjavík eða með tölvupósti á netfangið heilbrigdiseftirlit@reykjavik.is