Tillaga að starfsleyfi - Olís, bensínstöð við Fjallkonuveg 1

Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur hefur unnið tillögu að starfsleyfi fyrir Olís ehf. við Fjallkonuveg 1 vegna endurnýjunar starfsleyfis. Um er að ræða bensínstöð. Í tillögunni er lagt til að um starfsemina gildi almenn starfsleyfisskilyrði heilbrigðisnefndar Reykjavíkur fyrir mengandi starfsemi og starfsleyfisskilyrði heilbrigðisnefndar Reykjavíkur fyrir bensínstöðvar. Lagt er til að gildistími verði 12 ár. Gögn vegna tillögunnar eru aðgengileg á vef Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur https://reykjavik.is/tillogur-ad-starfsleyfi-i-auglysingu á tímabilinu 19. júlí til 16. ágúst 2024. Á  þeim tíma er öllum heimilt að senda inn athugasemdir og ábendingar við tillöguna. Athugasemdir skulu vera skriflegar og sendar Heilbrigðiseftirliti Reykjavíkur, Borgartúni 12-14, 105 Reykjavík eða með tölvupósti á netfangið heilbrigdiseftirlit@reykjavik.is