Tillaga að starfsleyfi - NOVA hf., skautasvell á Ingólfstorgi

Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur hefur unnið tillögu að tímabundnu starfsleyfi fyrir NOVA hf. að Ingólfstorgi vegna skautasvells NOVA á Ingólfstorgi. Um er að ræða útihátíð og starfsemi þar sem notað er kælikerfi sem inniheldur flúoraðar gróðurhúsalofttegundir eða ósoneyðandi efni sem og þjónusta við þau kerfi. Í tillögunni er lagt til að um starfsemina gildi starfsleyfisskilyrði Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur fyrir skautasvell Nova á Ingólfstorgi 14. nóvember 2024 til 5. janúar 2025, almenn starfsleyfisskilyrði heilbrigðisnefndar Reykjavíkur fyrir mengandi starfsemi og starfsskilyrði fyrir starfsemi þar sem notað er kælikerfi sem inniheldur flúoraðar gróðurhúsalofttegundir eða ósoneyðandi efni sem og þjónusta við þau. Lagt er til að gildistími verði frá 14. nóvember 2024 til 5. janúar 2025. Gögn vegna tillögunnar eru aðgengileg á vef Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur https://reykjavik.is/tillogur-ad-starfsleyfi-i-auglysingu á tímabilinu 24. október til 21. nóvember 2024. Á  þeim tíma er öllum heimilt að senda inn athugasemdir og ábendingar við tillöguna. Athugasemdir skulu vera skriflegar og sendar Heilbrigðiseftirliti Reykjavíkur, Borgartúni 12-14, 105 Reykjavík eða með tölvupósti á netfangið heilbrigdiseftirlit@reykjavik.is