Tillaga að starfsleyfi - Höfðadekk ehf. - Nesdekk Fiskislóð 41

Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur hefur unnið tillögu að starfsleyfi fyrir Höfðadekk (Nesdekk Fiskislóð) að Fiskislóð 41 vegna flutnings í nýtt húsnæði. Um er að ræða smurstöð, hjólbarðaverkstæði, og bifreiða og vélaverkstæði. Í tillögunni er lagt til að um starfsemina gildi almenn starfsleyfisskilyrði heilbrigðisnefndar Reykjavíkur fyrir mengandi starfsemi, samræmd starfsleyfisskilyrði fyrir smurstöðvar, samræmd starfsleyfisskilyrði fyrir hjólbarðaverkstæði og samræmd starfsleyfisskilyrði fyrir bifreiðaverkstæði og skyldan rekstur.

Lagt er til að gildistími verði 12 ár. Gögn vegna tillögunnar eru aðgengileg á vef Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur https://reykjavik.is/tillogur-ad-starfsleyfi-i-auglysingu á tímabilinu 17.08 til 14.09.23. Á  þeim tíma er öllum heimilt að senda inn athugasemdir og ábendingar við tillöguna. Athugasemdir skulu vera skriflegar og sendar Heilbrigðiseftirliti Reykjavíkur, Borgartúni 12-14, 105 Reykjavík eða með tölvupósti á netfangið heilbrigdiseftirlit@reykjavik.is.