Tillaga að starfsleyfi - N1 ehf., eldsneytisafgreiðsla Nauthólsvegi 68
Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur hefur unnið tillögu að starfsleyfi fyrir N1 að Nauthólsvegi 68 ( við Reykjavíkurflugvöll) vegna eigendaskipti á starfsleyfi. Um er að ræða eldsneytisafgreiðslu ( stáltankur fyrir flugvélaeldsneyti og dælubúnaður). Í tillögunni er lagt til að um starfsemina gildi almenn starfsleyfisskilyrði heilbrigðisnefndar Reykjavíkur fyrir mengandi starfsemi og starfsleyfisskilyrði heilbrigðisnefndar Reykjavíkur fyrir bensínstöðvar. Lagt er til að gildistími verði 12 ár. Gögn vegna tillögunnar eru aðgengileg á vef Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur https://reykjavik.is/tillogur-ad-starfsleyfi-i-auglysingu á tímabilinu 26.12.2024 til 27.12.2024. Á þeim tíma er öllum heimilt að senda inn athugasemdir og ábendingar við tillöguna. Athugasemdir skulu vera skriflegar og sendar Heilbrigðiseftirliti Reykjavíkur, Borgartúni 12-14, 105 Reykjavík eða með tölvupósti á netfangið heilbrigdiseftirlit@reykjavik.is.