Tillaga að starfsleyfi - Myndlistaskóli Reykjavíkur, Rauðarárstíg 10

Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur hefur unnið tillögu að starfsleyfi fyrir Myndlistaskólann í Reykjavík ses að Rauðarárstíg 10 F2010365 vegna flutninga í nýtt húsnæði. Um er að ræða skóla- og kennslustað ætlaður börnum eða fullorðnum 6 eða fleiri. Í tillögunni er lagt til að um starfsemina gildi almenn starfsleyfisskilyrði heilbrigðisnefndar Reykjavíkur fyrir mengandi starfsemi, og samræmd starfsleyfisskilyrði fyrir skóla- og kennslustaði ætluð börnum eða fullorðnum 6 eða fleiri. Gögn vegna tillögunnar eru aðgengileg á vef Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur https://reykjavik.is/tillogur-ad-starfsleyfi-i-auglysingu á tímabilinu 13. ágúst til 10. september 2024. Á  þeim tíma er öllum heimilt að senda inn athugasemdir og ábendingar við tillöguna. Athugasemdir skulu vera skriflegar og sendar Heilbrigðiseftirliti Reykjavíkur, Borgartúni 12-14, 105 Reykjavík eða með tölvupósti á netfangið heilbrigdiseftirlit@reykjavik.is.