Tillaga að starfsleyfi - Matfugl ehf. - alifuglabú, Melgerði Kjalarnesi

Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur hefur unnið tillögu að starfsleyfi fyrir Matfugl ehf. við Melagerði, Kjalarnesi vegna endurnýjunar á starfsleyfi. Um er að ræða útungunarstöð fyrir kjúklingarækt. Í tillögunni er lagt til að um starfsemina gildi almenn starfsleyfisskilyrði heilbrigðisnefndar Reykjavíkur fyrir mengandi starfsemi og samræmd starfsleyfisskilyrði fyrir alifugla- og svínabú. Lagt er til að gildistími verði 12 ár. Gögn vegna tillögunnar eru aðgengileg á vef Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur https://reykjavik.is/tillogur-ad-starfsleyfi-i-auglysingu á tímabilinu 06.05.2024 til 03.06.2024. Á  þeim tíma er öllum heimilt að senda inn athugasemdir og ábendingar við tillöguna. Athugasemdir skulu vera skriflegar og sendar Heilbrigðiseftirliti Reykjavíkur, Borgartúni 12-14, 105 Reykjavík eða með tölvupósti á netfangið heilbrigdiseftirlit@reykjavik.is