Malbikunarstöðin Höfði hf. - Sævarhöfði 6-10

Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur hefur unnið tillögu að starfsleyfi fyrir Malbikunarstöðina Höfða hf. að Sævarhöfða 6-10 vegna tímabundinnar starfsemi. Um er að ræða móttöku á úrgangi (malbikskögglar) til endurvinnslu. Í tillögunni er lagt til að um starfsemina gildi almenn starfsleyfisskilyrði heilbrigðisnefndar Reykjavíkur fyrir mengandi starfsemi. Lagt er til að gildistími verði til 1. janúar 2025. Í tillögunni er lagt til að heimilt verði að taka á móti og geyma allt að 25.000 tonnum af úrgangi á gildistíma leyfisins. Gögn vegna tillögunnar eru aðgengileg á vef Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur https://reykjavik.is/tillogur-ad-starfsleyfi-i-auglysingu á tímabilinu 7. nóvember til 6. desember 2023. Á  þeim tíma er öllum heimilt að senda inn athugasemdir og ábendingar við tillöguna. Athugasemdir skulu vera skriflegar og sendar Heilbrigðiseftirliti Reykjavíkur, Borgartúni 12-14, 105 Reykjavík eða með tölvupósti á netfangið heilbrigdiseftirlit@reykjavik.is