Tillaga að starfsleyfi - Lóa Festival í Laugardalnum

Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur hefur unnið tillögu að starfsleyfi fyrir Lifandi verkefni ehf. að Laugardal við Þróttaravöllinn vegna tímabundinnar starfsemi. Um er að ræða tónlistarhátíð, Lóa Festival. Í tillögunni er lagt til að um starfsemina gildi sértæk starfsleyfisskilyrði Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur fyrir útihátíðina Lóa Festival í Laugardalnum við Þróttaravöllinn 21. júní 2025, samræmd starfsleyfisskilyrði fyrir útihátíðir, almenn starfsleyfisskilyrði heilbrigðisnefndar Reykjavíkur fyrir mengandi starfsemi og almenn starfsleyfisskilyrði heilbrigðisnefndar Reykjavíkur fyrir færanlega matvælastarfsemi. Lagt er til að gildistími verði 21. júní 2025. Gögn vegna tillögunnar eru aðgengileg á vef Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkurhttps://reykjavik.is/auglysing-starfsleyfa-samkvaemt-reglugerd-nr-9032024 á tímabilinu 19.05.2025 til 16.06.2025. Á  þeim tíma er öllum heimilt að senda inn athugasemdir og ábendingar við tillöguna. Athugasemdir skulu vera skriflegar og sendar Heilbrigðiseftirliti Reykjavíkur, Borgartúni 12-14, 105 Reykjavík eða með tölvupósti á netfangið heilbrigdiseftirlit@reykjavik.is