Tillaga að starfsleyfi - Leikskólinn Klambrar að Háteigsvegi 33

Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur hefur unnið tillögu að starfsleyfi fyrir Reykjavíkurborg, skóla- og frístundasvið fyrir Leikskólann Klambra að Háteigsvegi 33. Breyting á starfsemi. Í tillögunni er lagt til að um starfsemina gildi samræmd starfsleyfisskilyrði fyrir leikskóla  Lagt er til að gildistími verði 12 ár. Gögn vegna tillögunnar eru aðgengileg á vef Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur https://reykjavik.is/tillogur-ad-starfsleyfi-i-auglysingu á tímabilinu 08.05. -  05.06.2025.  Á  þeim tíma er öllum heimilt að senda inn athugasemdir og ábendingar við tillöguna. Athugasemdir skulu vera skriflegar og sendar Heilbrigðiseftirliti Reykjavíkur, Borgartúni 12-14, 105 Reykjavík eða með tölvupósti á netfangið heilbrigdiseftirlit@reykjavik.is