Tillaga að starfsleyfi - Kría fargufa, færanleg starfsemi
Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur hefur unnið tillögu að starfsleyfi fyrir Vornótt ehf., færanleg starfsemi vegna nýrrar starfsemi. Um er að ræða fargufu. Í tillögunni er lagt til að um starfsemina gildi Sértæk starfsleyfisskilyrði fyrir fargufu. Lagt er til að gildistími verði 12 ár. Gögn vegna tillögunnar eru aðgengileg á vef Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur https://reykjavik.is/auglysing-starfsleyfa-samkvaemt-reglugerd-nr-9032024 á tímabilinu 19.05.2025 til 16.06.2025. Á þeim tíma er öllum heimilt að senda inn athugasemdir og ábendingar við tillöguna. Athugasemdir skulu vera skriflegar og sendar Heilbrigðiseftirliti Reykjavíkur, Borgartúni 12-14, 105 Reykjavík eða með tölvupósti á netfangið heilbrigdiseftirlit@reykjavik.is.