Tillaga að starfsleyfi - Kaffi Holt, kaffihús að Kirkjustétt 4

Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur hefur unnið tillögu að starfsleyfi fyrir Maya ehf. að Kirkjustétt 4 vegna starfsleyfis. Um er að ræða kaffihús. Í tillögunni er lagt til að um starfsemina gildi starfsleyfisskilyrði fyrir samkomuhús. Lagt er til að gildistími verði 12 ár. Gögn vegna tillögunnar eru aðgengileg á vef Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur á tímabilinu 6. maí til 3. júní. 2025. Á  þeim tíma er öllum heimilt að senda inn athugasemdir og ábendingar við tillöguna. Athugasemdir skulu vera skriflegar og sendar Heilbrigðiseftirliti Reykjavíkur, Borgartúni 12-14, 105 Reykjavík eða með tölvupósti á netfangið heilbrigdiseftirlit@reykjavik.is