Tillaga að starfsleyfi - JVP flutningar ehf., flutningur á spilliefnum

Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur hefur unnið tillögu að starfsleyfi fyrir JVP flutningum ehf að Dísaborgum 3 vegna umsóknar um nýtt starfsleyfi. Um er að ræða flutning á spilliefnum. Í tillögunni er lagt til að um starfsemina gildi almenn starfsleyfisskilyrði heilbrigðisnefndar Reykjavíkur fyrir mengandi starfsemi og samræmd starfsleyfisskilyrði fyrir flutning á spilliefnum. Lagt er til að gildistími verði 12 ár. Gögn vegna tillögunnar eru aðgengileg á vef Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur https://reykjavik.is/tillogur-ad-starfsleyfi-i-auglysingu á tímabilinu 22.01 til 19.02.2025. Á  þeim tíma er öllum heimilt að senda inn athugasemdir og ábendingar við tillöguna. Athugasemdir skulu vera skriflegar og sendar Heilbrigðiseftirliti Reykjavíkur, Borgartúni 12-14, 105 Reykjavík eða með tölvupósti á netfangið heilbrigdiseftirlit@reykjavik.is