Tillaga að starfsleyfi - Íslensk-bandaríska ehf., Smiðshöfði 5

Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur hefur unnið tillögu að starfsleyfi fyrir Íslensk-bandaríska ehf. að Smiðshöfða 5 vegna nýrrar starfsemi. Um er að ræða smurstöð, bifreiða- og vélaverkstæði og bón- og bílaþvottastöð handvirka. Í tillögunni er lagt til að um starfsemina gildi almenn starfsleyfisskilyrði heilbrigðisnefndar Reykjavíkur fyrir mengandi starfsemi, samræmds starfsleyfisskilyrði fyrir smurstöðvar, samræmd starfsleyfisskilyrði fyrir bifreiðaverkstæði og skylda starfsemi og samræmd starfsleyfisskilyrði fyrir bónstöðvar og bílaleigur. Lagt er til að gildistími verði 12 ár. Gögn vegna tillögunnar eru aðgengileg á vef Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur https://reykjavik.is/tillogur-ad-starfsleyfi-i-auglysingu á tímabilinu 20. febrúar til 20. mars 2024. Á  þeim tíma er öllum heimilt að senda inn athugasemdir og ábendingar við tillöguna. Athugasemdir skulu vera skriflegar og sendar Heilbrigðiseftirliti Reykjavíkur, Borgartúni 12-14, 105 Reykjavík eða með tölvupósti á netfangið heilbrigdiseftirlit@reykjavik.is