Tillaga að starfsleyfi - Húðflúrráðstefna Reykjavík Ink í Gamla bíó

Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur hefur unnið tillögu að starfsleyfi fyrir Reykjavík Ink að Ingólfsstræti 2a vegna tímabundins starfsleyfis fyrir húðflúrráðstefnu. Um er að ræða húðflúrstofu. Í tillögunni er lagt til að um starfsemina gildi Sértæk starfsleyfisskilyrði Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur fyrir húðflúrráðstefnu Reykjavík Ink í Gamla bíó 2025. Lagt er til að gildistími verði frá 06. júní til 08. júní 2025 Gögn vegna tillögunnar eru aðgengileg á vef Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur https://reykjavik.is/tillogur-ad-starfsleyfi-i-auglysingu á tímabilinu 06. maí til 03. júní. 2025. Á  þeim tíma er öllum heimilt að senda inn athugasemdir og ábendingar við tillöguna. Athugasemdir skulu vera skriflegar og sendar Heilbrigðiseftirliti Reykjavíkur, Borgartúni 12-14, 105 Reykjavík eða með tölvupósti á netfangið heilbrigdiseftirlit@reykjavik.is