Tillaga að starfsleyfi - Hringrás ehf., Klettagarðar 9

Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur hefur unnið tillögu að starfsleyfi fyrir Hringrás ehf. kt. 490195-2039 að Klettagörðum 9 vegna endurnýjunar starfsleyfis. Um er að ræða móttöku á brotamálmum, móttöku á bifreiðum sem áformað er að farga, smurstöð, bifreiða og vélaverkstæði, olíugeyma til eigin nota, flutningi á úrgangi og flutningi á spilliefnum. Í tillögunni er lagt til að um starfsemina gildi starfsleyfisskilyrði fyrir Hringrás ehf. að Klettagörðum 9, almenn starfsleyfisskilyrði heilbrigðisnefndar Reykjavíkur fyrir mengandi starfsemi, samræmd starfsleyfisskilyrði fyrir smurstöðvar, samræmd starfsleyfisskilyrði fyrir almenn bifreiðaverkstæði og skyldan rekstur, samræmd starfsleyfisskilyrði fyrir móttökustöð fyrir ökutæki sem áformað er að farga, samræmd starfsleyfisskilyrði fyrir flutningi á spilliefnum og samræmdum starfsleyfisskilyrðum fyrir flutningi á úrgangi. Lagt er til að gildistími verði til 31. desember 2024. Gögn vegna tillögunnar eru aðgengileg á vef Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur https://reykjavik.is/tillogur-ad-starfsleyfi-i-auglysingu á tímabilinu 23. janúar til 21. febrúar 2024. Á  þeim tíma er öllum heimilt að senda inn athugasemdir og ábendingar við tillöguna. Athugasemdir skulu vera skriflegar og sendar Heilbrigðiseftirliti Reykjavíkur, Borgartúni 12-14, 105 Reykjavík eða með tölvupósti á netfangið heilbrigdiseftirlit@reykjavik.is