Tillaga að starfsleyfi - Háskóli Íslands, geymsla á gasi og öðrum hættulegum efnum að Klettagörðum 6

Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur hefur unnið tillögu að starfsleyfi fyrir Háskóla Íslands að Klettagörðum 6 vegna flutnings í nýtt húsnæði. Um er að ræða geymslu á gasi og öðrum hættulegum efnum (rannsóknarstofu). Í tillögunni er lagt til að um starfsemina gildi almenn starfsleyfisskilyrði heilbrigðisnefndar Reykjavíkur fyrir mengandi starfsemi og samræmdum starfsleyfisskilyrðum fyrir framhaldsskóla og háskóla. Lagt er til að gildistími verði 12 ár. Gögn vegna tillögunnar eru aðgengileg á vef Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur https://reykjavik.is/tillogur-ad-starfsleyfi-i-auglysingu á tímabilinu 22. 10 til 19. 11. 2024. Á  þeim tíma er öllum heimilt að senda inn athugasemdir og ábendingar við tillöguna. Athugasemdir skulu vera skriflegar og sendar Heilbrigðiseftirliti Reykjavíkur, Borgartúni 12-14, 105 Reykjavík eða með tölvupósti á netfangið heilbrigdiseftirlit@reykjavik.is