Tillaga að starfsleyfi -Gallon ehf., eldsneytisafgreiðsla að Þorragötu 12b ,12c og 12d
Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur hefur unnið tillögu að starfsleyfi fyrir Gallon ehf. að Þorragötu 12b, 12c og 12d vegna eigendaskiptis á starfsleyfis. Um er að ræða eldsneytisafgreiðslu ( stáltankar með flugeldsneyti og dæluhús). Í tillögunni er lagt til að um starfsemina gildi almenn starfsleyfisskilyrði heilbrigðisnefndar Reykjavíkur fyrir mengandi starfsemi og starfsleyfisskilyrði heilbrigðisnefndar Reykjavíkur fyrir bensínstöðvar. Lagt er til að gildistími verði 12 ár. Gögn vegna tillögunnar eru aðgengileg á vef Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur https://reykjavik.is/tillogur-ad-starfsleyfi-i-auglysingu á tímabilinu 26.11.2024 til 27.12.2024. Á þeim tíma er öllum heimilt að senda inn athugasemdir og ábendingar við tillöguna. Athugasemdir skulu vera skriflegar og sendar Heilbrigðiseftirliti Reykjavíkur, Borgartúni 12-14, 105 Reykjavík eða með tölvupósti á netfangið heilbrigdiseftirlit@reykjavik.is.