Tillaga að starfsleyfi - Faxaflóahafnir - Klettagarðar

Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur hefur unnið tillögu að starfsleyfi fyrir Faxaflóahafnir sf. á athafnasvæði við Klettagarða sbr. mynd 1 í tillögu að starfsleyfi vegna nýrrar starfsemi. Um er að ræða um er að ræða móttöku á úrgangi til endurvinnslu þ.e. móttöku á uppgröfnum, ómenguðum jarðefnum sem fjarlægja þarf af byggingarsvæðum eða vegna annarra framkvæmda. Í tillögunni er lagt til að um starfsemina gildi almenn starfsleyfisskilyrði heilbrigðisnefndar Reykjavíkur fyrir mengandi starfsemi og starfsleyfisskilyrði fyrir Faxaflóahafnir sf. vegna móttöku á úrgangi til endurnýtingar. Lagt er til að gildistími verði til 30. desember 2030. Gögn vegna tillögunnar eru aðgengileg á vef Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur https://reykjavik.is/tillogur-ad-starfsleyfi-i-auglysingu á tímabilinu 27. desember 2023 til 24. janúar 2024. Á þeim tíma er öllum heimilt að senda inn athugasemdir og ábendingar við tillöguna. Athugasemdir skulu vera skriflegar og sendar Heilbrigðiseftirliti Reykjavíkur, Borgartúni 12-14, 105 Reykjavík eða með tölvupósti á netfangið heilbrigdiseftirlit@reykjavik.is.