Tillaga að starfsleyfi - Endurvinnslan hf. -Köllunarklettsvegur 4

Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur hefur unnið tillögu að starfsleyfi fyrir Endurvinnsluna hf. að Köllunarklettsvegi 4 vegna flutnings starfseminnar í nýtt húsnæði. Um er að ræða móttöku á úrgangi til endurvinnslu þ.e. móttöku á einnota drykkjarumbúðum. Í tillögunni er lagt til að um starfsemina gildi almenn starfsleyfisskilyrði heilbrigðisnefndar Reykjavíkur fyrir mengandi starfsemi. Lagt er til að gildistími verði 12 ár. Gögn vegna tillögunnar eru aðgengileg á vef Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur https://reykjavik.is/tillogur-ad-starfsleyfi-i-auglysingu á tímabilinu 10. júlí til 10. ágúst 2023. Á  þeim tíma er öllum heimilt að senda inn athugasemdir og ábendingar við tillöguna. Athugasemdir skulu vera skriflegar og sendar Heilbrigðiseftirliti Reykjavíkur, Borgartúni 12-14, 105 Reykjavík eða með tölvupósti á netfangið heilbrigdiseftirlit@reykjavik.is.