Tillaga að starfsleyfi - Eðaldekk ehf. (Sólning) - Grjótháls 10

Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur hefur unnið tillögu að starfsleyfi fyrir Eðaldekk ehf. að Grjóthálsi 10 vegna nýrrar starfsemi. Um er að ræða smurstöð og hjólbarðaverkstæði (Sólning). Í tillögunni er lagt til að um starfsemina gildi almenn starfsleyfisskilyrði heilbrigðisnefndar Reykjavíkur fyrir mengandi starfsemi, samræmd starfsleyfisskilyrði fyrir smurstöðvar og samræmd starfsleyfisskilyrði fyrir hjólbarðaverkstæði. Lagt er til að gildistími starfsleyfis verði 12 ár frá samþykkt þess. Gögn vegna tillögunnar eru aðgengileg á vef Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur https://reykjavik.is/tillogur-ad-starfsleyfi-i-auglysingu á tímabilinu 6. júlí til 6. ágúst 2023. Á  þeim tíma er öllum heimilt að senda inn athugasemdir og ábendingar við tillöguna. Athugasemdir skulu vera skriflegar og sendar Heilbrigðiseftirliti Reykjavíkur, Borgartúni 12-14, 105 Reykjavík eða með tölvupósti á netfangið heilbrigdiseftirlit@reykjavik.is.