Tillaga að starfsleyfi - Eðalbílar ehf., smurstöð og bifreiða og vélaverkstæði að Funahöfða 15

Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur hefur unnið tillögu að starfsleyfi fyrir Eðalbíla ehf að Funahöfða 15 vegna flutnings í nýtt húsnæði. Um er að ræða smurstöð og bifreiða og vélaverkstæði. Í tillögunni er lagt til að um starfsemina gildi almenn starfsleyfisskilyrði heilbrigðisnefndar Reykjavíkur fyrir mengandi starfsemi, samræmd starfsskilyrði fyrir bifreiðaverkstæði og skyldan rekstur og samræmd starfsleyfisskilyrði fyrir smurstöðvar. Lagt er til að gildistími verði 12 ár eða tímabil tímabundins starfsleyfis. Gögn vegna tillögunnar eru aðgengileg á vef Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur https://reykjavik.is/tillogur-ad-starfsleyfi-i-auglysingu á tímabilinu 04.10.2024  til . 01.11. 2024. Á  þeim tíma er öllum heimilt að senda inn athugasemdir og ábendingar við tillöguna. Athugasemdir skulu vera skriflegar og sendar Heilbrigðiseftirliti Reykjavíkur, Borgartúni 12-14, 105 Reykjavík eða með tölvupósti á netfangið heilbrigdiseftirlit@reykjavik.is