Tillaga að starfsleyfi - The Drunk Rabbit að Austurstræti 3

Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur hefur unnið tillögu að starfsleyfi fyrir Sveitta Kanína ehf. að Austurstræti 3, vegna eigendaskipta. Um er að ræða veitngastað;krá. Í tillögunni er lagt til að um starfsemina gildi starfsleyfisskilyrði fyrir samkomustaði. Lagt er til að gildistími verði 12 ár. Gögn vegna tillögunnar eru aðgengileg á vef Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur https://reykjavik.is/tillogur-ad-starfsleyfi-i-auglysingu á tímabilinu 19. maí til 16. júní 2025. Á  þeim tíma er öllum heimilt að senda inn athugasemdir og ábendingar við tillöguna. Athugasemdir skulu vera skriflegar og sendar Heilbrigðiseftirliti Reykjavíkur, Borgartúni 12-14, 105 Reykjavík eða með tölvupósti á netfangið heilbrigdiseftirlit@reykjavik.is