Tillaga að starfsleyfi - Carbfix hf., Höfðabakki 9D

Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur hefur unnið tillögu að starfsleyfi fyrir Carbfix hf. að Höfðabakka 9D vegna nýrrar starfsemi. Um er að ræða rannsóknastofu og geymslu  gass og annarra hættulegra efna sbr. lið nr. 38 í viðauka IV í lögum nr. 7/1998 um hollustuhætti og mengunarvarnir. Í tillögunni er lagt til að um starfsemina gildi almenn starfsleyfisskilyrði heilbrigðisnefndar Reykjavíkur fyrir mengandi starfsemi. Lagt er til að gildistími verði 12 ár. Gögn vegna tillögunnar eru aðgengileg á vef Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur https://reykjavik.is/tillogur-ad-starfsleyfi-i-auglysingu á tímabilinu 20. desember 2023 til 18. janúar 2024. Á  þeim tíma er öllum heimilt að senda inn athugasemdir og ábendingar við tillöguna. Athugasemdir skulu vera skriflegar og sendar Heilbrigðiseftirliti Reykjavíkur, Borgartúni 12-14, 105 Reykjavík eða með tölvupósti á netfangið heilbrigdiseftirlit@reykjavik.is.