Tillaga að starfsleyfi - Kaffi Mílanó (Kaffihús) að Faxafeni 11

Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur hefur unnið tillögu að starfsleyfi fyrir Kaffi Mílanó ehf. að Faxafeni 11, vegna endurnýjunar. Um er að ræða kaffihús. Í tillögunni er lagt til að um starfsemina gildi starfsleyfisskilyrði fyrir samkomustaði. Lagt er til að gildistími verði 12 ár. Gögn vegna tillögunnar eru aðgengileg á vef Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur https://reykjavik.is/auglysing-starfsleyfa-samkvaemt-reglugerd-nr-9032024 á tímabilinu 23. maí til 20. júní 2025.  Á þeim tíma er öllum heimilt að senda inn athugasemdir og ábendingar við tillöguna. Athugasemdir skulu vera skriflegar og sendar Heilbrigðiseftirliti Reykjavíkur, Borgartúni 12-14, 105 Reykjavík eða með tölvupósti á netfangið heilbrigdiseftirlit(hjá)reykjavik.is.