Tillaga að starfsleyfi - Smurstöð, bifreiða- og vélaverkstæði, hjólbarðaverkstæði og handvirk bónstöð - Sævarshöfði 2

Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur hefur unnið tillögu að starfsleyfi fyrir BL-Sævarhöfða ehf. við Sævarhöfða 2 vegna endurnýjunar starfsleyfis. Um er að ræða smurstöð, bifreiða- og vélaverkstæði, hjólbarðaverkstæði og handvirka bónstöð. Í tillögunni er lagt til að um starfsemina gildi almenn starfsleyfisskilyrði heilbrigðisnefndar Reykjavíkur fyrir mengandi starfsemi, samræmd starfsleyfisskilyrði fyrir smurstöðvar, samræmd starfsleyfisskilyrði fyrir bifreiðaverkstæði og skyldan rekstur, samræmd starfsleyfisskilyrði fyrir hjólbarðaverkstæði og samræmd starfsleyfisskilyrði fyrir bónstöðvar og bílaleigur. Lagt er til að gildistími verði 12 ár. Gögn vegna tillögunnar eru aðgengileg á vef Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur https://reykjavik.is/tillogur-ad-starfsleyfi-i-auglysingu á tímabilinu 19. apríl 2024 til 17. maí 2024. Á  þeim tíma er öllum heimilt að senda inn athugasemdir og ábendingar við tillöguna. Athugasemdir skulu vera skriflegar og sendar Heilbrigðiseftirliti Reykjavíkur, Borgartúni 12-14, 105 Reykjavík eða með tölvupósti á netfangið heilbrigdiseftirlit@reykjavik.is