Tillaga að starfsleyfi - BL-JLR ehf., smurstöð, bifreiða- og vélaverkstæði, bónstöð handvirk að Hesthálsi 6-8

Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur hefur unnið tillögu að starfsleyfi fyrir BL-JLR ehf. að Hesthálsi 6-8  vegna eigendaskipta. Um er að ræða smurstöð, bifreiða- og vélaverkstæði og handvirka bónstöð. Í tillögunni er lagt til að um starfsemina gildi almenn starfsleyfisskilyrði heilbrigðisnefndar Reykjavíkur fyrir mengandi starfsemi, starfsleyfisskilyrði fyrir smurstöðvar, starfsleyfisskilyrði fyrir bifreiðaverkstæði og skyldan rekstur og starfsleyfisskilyrði fyrir bónstöðvar og bílaleigur. Lagt er til að gildistími verði 12 ár. Gögn vegna tillögunnar eru aðgengileg á vef Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur https://reykjavik.is/tillogur-ad-starfsleyfi-i-auglysingu á tímabilinu 25. 03 til 22. 04. 25. Á  þeim tíma er öllum heimilt að senda inn athugasemdir og ábendingar við tillöguna. Athugasemdir skulu vera skriflegar og sendar Heilbrigðiseftirliti Reykjavíkur, Borgartúni 12-14, 105 Reykjavík eða með tölvupósti á netfangið heilbrigdiseftirlit@reykjavik.is