Tillaga að starfsleyfi - Bílson ehf. - smurstöð, bifreiða- og vélaverkstæði, bónstöð handvirk að kletthálsi 9
Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur hefur unnið tillögu að starfsleyfi fyrir Bílson ehf. að Kletthálsi 9 vegna endurnýjunar starfsleyfis. Um er að ræða smurstöð, bifreiða- og vélaverkstæði og handvirka bónstöð. Í tillögunni er lagt til að um starfsemina gildi almenn starfsleyfisskilyrði heilbrigðisnefndar Reykjavíkur fyrir mengandi starfsemi, samræmd starfsleyfisskilyrði fyrir bifreiðaverkstæði og skyldan rekstur, samræmd starfsleyfisskilyrði fyrir smurstöðvar og samræmd starfsleyfisskilyrði fyrir bónstöðvar og bílaleigur. Lagt er til að gildistími verði 12 ár. Gögn vegna tillögunnar eru aðgengileg á vef Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur https://reykjavik.is/tillogur-ad-starfsleyfi-i-auglysingu á tímabilinu 21. 03 til 18. 04. 25. Á þeim tíma er öllum heimilt að senda inn athugasemdir og ábendingar við tillöguna. Athugasemdir skulu vera skriflegar og sendar Heilbrigðiseftirliti Reykjavíkur, Borgartúni 12-14, 105 Reykjavík eða með tölvupósti á netfangið heilbrigdiseftirlit@reykjavik.is.