Tillaga að starfsleyfi - Bílaleigan GO ehf., smurstöð, bifreiða- og vélaverkstæði, handvirk bónstöð og hjólbarðaverkstæði að Skógarhlíð 16

Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur hefur unnið tillögu að starfsleyfi fyrir Bílaleiguna GO ehf., að Skógarhlíð 16 vegna nýrrar starfsemi. Um er að ræða smurstöð, bifreiða- og vélaverkstæði, handvirka bónstöð og hjólbarðaverkstæði. Í tillögunni er lagt til að um starfsemina gildi almenn starfsleyfisskilyrði heilbrigðisnefndar Reykjavíkur fyrir mengandi starfsemi, samræmd starfsleyfisskilyrði fyrir smurstöðvar, samræmd starfsleyfisskilyrði fyrir bifreiðaverkstæði og skyldan rekstur, samræmd starfsleyfisskilyrði fyrir bónstöðvar og bílaleigur og samræmd starfsleyfisskilyrði fyrir hjólbarðaverkstæði. Lagt er til að gildistími verði 12 ár. Gögn vegna tillögunnar eru aðgengileg á vef Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur https://reykjavik.is/tillogur-ad-starfsleyfi-i-auglysingu á tímabilinu 13. mars - 10. apríl 2025. Á  þeim tíma er öllum heimilt að senda inn athugasemdir og ábendingar við tillöguna. Athugasemdir skulu vera skriflegar og sendar Heilbrigðiseftirliti Reykjavíkur, Borgartúni 12-14, 105 Reykjavík eða með tölvupósti á netfangið heilbrigdiseftirlit@reykjavik.is