Stjörnuegg hf. - Saltvík, Kjalarnesi

Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur hefur unnið tillögu að starfsleyfi fyrir Stjörnuegg hf. í Saltvík, Kjalarnesi vegna endurnýjunar þess. Um er að ræða eldi varpfugla fyrir eggjaframleiðslu. Fjöldi fugla er færri en 40.000 og því starfsleyfi veitt af heilbrigðiseftirliti. Í tillögunni er lagt til að um starfsemina gildi almenn starfsleyfisskilyrði heilbrigðisnefndar Reykjavíkur fyrir mengandi starfsemi og samræmd starfsleyfisskilyrði fyrir alifugla- og svínabú. Lagt er til að gildistími verði 12 ár. Gögn vegna tillögunnar eru aðgengileg á vef Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur https://reykjavik.is/tillogur-ad-starfsleyfi-i-auglysingu á tímabilinu 06.10.2023 til 03.11.2023. Á  þeim tíma er öllum heimilt að senda inn athugasemdir og ábendingar við tillöguna. Athugasemdir skulu vera skriflegar og sendar Heilbrigðiseftirliti Reykjavíkur, Borgartúni 12-14, 105 Reykjavík eða með tölvupósti á netfangið heilbrigdiseftirlit@reykjavik.is.