Silfratjörn 1-3, Gæfutjörn 18 og Skyggnisbraut 21-23 - lóð C1

Grenndarkynning á deiliskipulagi

Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa þann 16. mars 2023 var lögð fram tillaga um breytingu á deiliskipulagi Úlfarsárdals vegna lóðarinnar nr. 1 við Silfratjörn. Í breytingunni sem lögð er til felst að stækka byggingarreit lítillega vestan við húsið, skilgreindir eru þrír nýir byggingarreitir, byggingarreitur B1, B2 og B3, sem allir hafa skilyrta notkun, eitt bílastæði verði fyrir hverja íbúð óháð stærð, auk þriggja bílastæða fyrir hreyfihamlaða, svalir megi ná 160 cm út fyrir byggingarreit, en þó megi þær ekki fara yfir lóðarmörk, heimilt verði að færa byggingarmagn á milli byggingarreita og staðfanga og að sami aðili megi hanna fleiri en eitt hús á lóðinni, samkvæmt uppdr. Glámu-Kím, dags. 27. febrúar 2023.

Með vísan til 2. mgr. 44. gr. laga nr. 123/2010 er eftirtöldum hagsmunaaðilum gefinn kostur á að tjá sig um tillöguna:

Húseigendum að Skyggnisbraut 17 og 25, Rökkvatjörn 2, 4, 6 og 6A og Silfratjörn 2.

Bent skal á að leigutakar húsnæðis á ofangreindum lóðum teljast einnig til hagsmunaaðila og skulu húseigendur kynna tillöguna fyrir þeim.

Nánari upplýsingar eru veittar hjá skipulagsfulltrúa, verkefnisstjóri er Hrafnhildur Sverrisdóttir.

Kynning hefst þann 17. apríl 2023 og skal athugasemdum við ofanskráða tillögu komið til skipulagsfulltrúa skriflega eða á netfangið skipulag@reykjavik.is eigi síðar en 17. maí 2023.

Umhverfis- og skipulagssvið notar þær persónugreinanlegu upplýsingar sem settar eru fram vegna athugasemda við skipulag, s.s. kennitölu, nafn og netfang í þeim tilgangi að vinna úr athugasemdum og auðkenna borgarbúa. Að auglýsingarferli loknu eru gögn varðveitt í 30 ár og flytjast að þeim tíma liðnum til Þjóðskjalasafns Íslands skv. lögum nr. 77/2014 um opinber skjalasöfn. Nánari upplýsingar um meðferð persónuupplýsinga hjá Reykjavíkurborg má finna hér.

Vakin er athygli á því að athugasemdir teljast til opinberra gagna í allri skipulagsmeðferð og birtast meðal annars nöfn borgarbúa í fundargerðum skipulags- og samgönguráðs á netinu.