Siglunes

Útivistarsvæði

Nauthólsvegur 104
102 Reykjavík

Krakkar á bát á siglinganámskeiði í Siglunesi.

Höldum til hafs!

Siglunes er ævintýramiðstöð við sjóinn þar sem hressum og kjörkuðum krökkum gefst kostur á að finna kröftum sínum og ævintýraþrá farveg. Á sumrin er boðið uppá siglinganámskeið fyrir börn og unglinga á aldrinum  9–12 ára og siglingaklúbb fyrir 10–16 ára unglinga sem hafa áhuga og reynslu af siglingum og öðru bátasporti.

Afar rík áhersla er lögð á þjálfun starfsfólks. Starfsfólk hefur mikla þekkingu og reynslu á viðfangsefni námskeiðanna og er þjálfað í skyndihjálp og notkun báta og búnaðar sem notaður er á námskeiðunum. Starfsfólk Sigluness leggur áherslu á að öllum þátttakendum í starfinu líði vel og að dagskrá námskeiðanna sé fjölbreytt, þroskandi og skemmtileg.

""

Skráning á sumarnámskeið

Skráning á siglinganámskeið og í vatnasportklúbbinn hefst þriðjudaginn 28. apríl kl. 12:00 á sumar.vala.is.

Dagsetningar 2026

15. júní – 19. júní *
22. júní – 26. júní
29. júní – 3. júlí
06. júlí – 10. júlí
13. júlí – 17. júlí
20. júlí – 24. júlí
27. júlí – 31. júlí
04. ágúst – 7.águst *

* Fjórir dagar

Siglingar, róður, ævintýri.

Námskeið í siglingum og róðri fyrir 9–12 ára

Lýsing: Spennandi og skemmtilegt námskeið þar sem þátttakendur læra tökin á mismunandi bátum, læra um öryggisatriði og notkun björgunarvesta.

Námskeiðið er hlaðið spennu og ævintýrum þar sem þeir takast á við nýjar og spennandi áskoranir á hverjum degi og kynnast ýmsum tegundum af bátum og virkni þeirra. Á námskeiðinu læra þátttakendur hvernig á að velja sér björgunarvesti og klæðast því á réttan hátt.

Markmið námskeiðs: Að þátttakendur læri grunnatriði siglinga og róðurs.

Bátar: Siglt er á seglbátum, róið á kayökum, kanóum og árabátum.

Námskeið eru frá mánudegi til föstudags.

  • Fyrir hádegi 09:00–12:00
  • Eftir hádegi 13:00–16:00

Athugaðu að skráningarsíðan mun ekki sýna námskeiðið fyrr en kl. 12:00, þriðjudaginn 28. apríl þegar skráning hefst.

Vatnasportklúbbur Siglunes

Siglingaklúbbur fyrir 10–16 ára

Lýsing: Vatnasportklúbburinn er fyrir þá sem hafa farið á námskeið, eða eru vanir að sigla og róa, og/eða hafa mikinn áhuga á að kynnast vatnasporti og ævintýrum.

Klúbbfélagar eru undir eftirliti starfsfólks Siglunes sem sér um að leiðbeina og gefa góðar ráðleggingar svo að allir geti bætt færni sína. Klúbbfélagar verða að klæðast björgunarvesti út á sjó, á bryggjunni og í heita pottinum.

Vinsamlega athugið að vatnasportklúbburinn er ekki siglinga- og róðranámskeið. Klúbbfélagar ákveða í samráði við starfsfólk hvaða bátum þeir sigla eða róa hverju sinni.

Bátar: Klúbbfélagar hafa daglega aðgang að seglbátum, kayökum, kanóum, róðrabrettum (SUP) og árabátum.

Opið fyrir klúbbara mánudaga til föstudaga

  • Eftir hádegi 13:00–17:00

Athugaðu að skráningarsíðan mun ekki sýna námskeiðið fyrr en kl. 12:00, þriðjudaginn 28. apríl þegar skráning hefst.

 

Krakkar að hoppa í lónið við Nauthólsvík.

Öryggisatriði og upplýsingar fyrir aðstandendur

  • Allir þátttakendur verða að klæðast björgunarvesti út á sjó, á bryggjunni og í heita pottinum.
  • Þátttakendur í starfi Siglunes eru alltaf undir eftirliti starfsfólks.
  • Gæslubátar fylgjast með allri starfsemi á sjó og eru alltaf til taks.
  • Allt starfsfólk Siglunes fer á skyndihjálparnámskeið og öryggis- og fræðslunámskeið Siglunes  samtals 40 klst. á hverju ári.
  • Klæðnaður: Þátttakendur þurfa að vera klæddir í hlý og skjólgóð föt og hafa meðferðis aukaföt og nesti.

Upplýsingar fyrir foreldra

Á siglinganámskeiðum í Siglunesi er áhersla lögð á að öllum þátttakendum líði vel og að dagskrá námskeiðsins sé fjölbreytt, þroskandi og skemmtileg. Starfsemin í Siglunesi er augljóslega mjög háð duttlungum veðurguðanna og þar af leiðandi getur dagskráin breyst fyrirvaralaust. Við förum engu að síður alltaf út á sjó hvernig sem viðrar og högum seglum þá eftir vindi.

 

Á námskeiðið þurfa börnin að hafa með sér nesti. Mikilvægt er að börnin hafi skýr fyrirmæli um hvort þau verði sótt eftir námskeiðið eða hvort þau eigi að taka strætó eða hjóla heim. Börnin þurfa einnig að fara heim strax að námskeiði loknu og bíður dagskráin okkar ekki upp á svigrúm til gæslu þar sem hádegið er notað í að ganga frá eftir morgunnámskeiðið, borða hádegismat og undirbúa eftir hádegið. Einnig í lok dagsins yfirgefa starfsmenn húsið að frágangi loknum.

 

Mikilvægt er að mæta stundvíslega því ef hópurinn er kominn út á sjó er ekki víst að hægt sé að snúa við til að ná í þann sem er of seinn. Ef veikindi eða forföll verða vinsamlegast látið vita í síma 551 3177.

Teikning af upplýsingaskilti.

Klæðnaður

Í Siglunesi er farið út á sjó hvernig sem viðrar og veðrið út á sjó er í öllum tilvikum þannig að mikilvægt er að vera vel klæddur þó það sé bongó blíða.

 

Forðast skal fatnað úr bómullarefnum. Bómullarföt verða köld og þung þegar þau blotna og eru lengi að þorna. Fleece, ull og ýmis gerviefni (poly-alls konar) henta mun betur.

 

Góður fatnaður er mikilvægur til að halda hita á líkamanum og þar af leiðandi til að hafa einbeitingu og úthald til að takast á við hin margvíslegu verkefni siglinganámskeiðsins.

 

Ef starfsfólk metur klæðnað barns þannig að því gæti verið búin hætta vegna ofkælingar, mun barnið ekki fá að fara út á sjó þann daginn.

Börn og fullorðnir í Siglunesi við Nauthólsvík á árabátum og á "stökkpalli" fyrir báta.

Útbúnaðarlisti

  • Skór: Gamlir strigaskór eða sandalar sem mega blotna.
    Ekki er gott að klæðast stígvélum þar sem þau eiga það til að fyllast af vatni og sökkva.
  • Jakki vind og/eða vatnsheldur
  • Buxur vind og/eða vatnsheldar
  • Peysa t.d þykk flís/ullarpeysa
  • Síðermabolur t.d. ull eða gerviefni en ekki bómull
  • Síðar nærbuxur t.d. úr ull
  • Stuttermabolur t.d. æfingabolur úr glnasnefni en ekki bómull
  • Sokkar t.d. ullar- eða göngusokkar úr gerviefnis og/eða ullarblöndu.
  • Húfa
  • Vettlingar
  • Handklæði
  • Aukaföt: Oft blotna börnin alveg í gegn og þurfa því alltaf að hafa með sér aukasett af fötum. (Allt frá skóm og úlpu til nærbuxna)
  • Plastpoki fyrir blautu fötin
  • Taska
  • Nesti

Aðstaða í Siglunesi

Öryggi

Í Siglunesi er öryggið í fyrirrúmi og hér eru til björgunarvesti í öllum stærðum og gerðum fyrir þau sem fara út á sjó hjá okkur.

  • Reglan er einföld: Ekkert vesti – engin sjóferð.

Klefar

Búningsklefarnir okkar búa yfir bekkjum og snögum.

Sturtur

Einu sturturnar í Siglunesi eru útisturtur.

Heitur pottur

Fiskikarið okkar er að okkar mati, er besti heitapottur landsins. Hér er elduð krakkasúpa mjög reglulega.

Salur

Í Stofunni er aðstaða til að borða nesti og einnig inni kennsluaðstaðan okkar. Í Stofunni er einnig tjald fyrir skjávarpa.

Pallur

Á pallinum okkar er oftast skjólsælt og tilvalið að borða þar nesti á góðviðrisdögum.