Reglur og skilmálar vegna sumarstarfa
Sumarstörf hjá Reykjavíkurborg 2023
- Almennt er opið fyrir umsóknir um sumarstörf hjá Reykjavíkurborg frá 17. febrúar til 05. mars. Vakin er athygli á því að umsóknarfrestur getur verið lengri vegna starfa á ákveðnum starfsstöðvum borgarinnar sökum eðli starfseminnar. Nánari upplýsingar um umsóknarfresti er að finna á www.reykjavik.is/sumarstorf.
- Markmiðið er að bjóða ungmennum, fæddum 2006 og eldri, almenn sumarstörf og afleysingastörf hjá stofnunum borgarinnar.
- Almennt þurfa umsækjendur að hafa náð 20 ára aldri til að vera ráðnir sem leiðbeinendur á sumarnámskeiðum eða við öryggisstörf. Hjá Vinnuskóla Reykjavíkur er lágmarksaldur leiðbeinenda 22 ár en liðsmanna og aðstoðarleiðbeinenda 20 ár.
- Ráðningatími er 4 - 12 vikur.
- Þau ungmenni sem lögheimili eiga í Reykjavík hafa forgang í störf hjá Reykjavíkurborg.
- Umsókn um starf jafngildir ekki ráðningarsamningi.
- Ef umsækjandi fær höfnun á starfsumsókn sinni, getur hann mögulega fengið tilboð um starf á annarri starfsstöð Reykjavíkurborgar.
- Sérstakar reglur eru um Skapandi sumarstörf en þar starfar sérstakur faghópur að úrvinnslu umsókn, sjá nánar í viðkomandi umsóknum.
- Einungis er hægt að sækja um störf rafrænt á sumarstarfasíðu.
- Reykjavíkurborg áskilur sér rétt til að breyta reglum þessum án fyrirvara.
- Hitt húsið býður upp á aðstoð fyrir einstaklinga 16-25 ára í leit að sumarstarfi.
Nánari upplýsingar veitir:
Skrifstofa ráðninga og mönnunar
Mannauðs- og starfsumhverfissvið
netfang: mannaudur@reykjavik.is