Borgin með sand og salt fyrir íbúa

Mannlíf Samgöngur

""

Íbúar sem vilja bæta öryggi á gönguleiðum í nágrenni sínu og heimreiðum  geta náð í salt og sand á hverfastöðvar og verkbækistöðvar Reykjavíkurborgar.

Salt og sandur er aðgengilegur fyrir íbúa á eftirfarandi stöðum:

  • Þjónustumiðstöðin við Svarthöfða (hjá Stórhöfða)
  • Hverfastöðinni við Njarðargötu,      
  • Hverfastöðinni í Jafnaseli,
  • Verkbækistöðinni við Árbæjarblett, Rafstöðvarvegi
  • Hverfastöðinni á Kjalarnesi.

Stöðvarnar opna allar kl. 7.30 virka daga.  Þær eru opnar til kl. 17.00 á mánudögum. Þriðjudaga, miðvikudaga og fimmtudaga er opið til kl. 16.00 og á föstudögum er opið til kl. 15:25. 

Íbúar eru hvattir til að hafa með sér ílát en einnig er mögulegt að fá poka á staðnum.  Skóflur eru við sand- og salthrúgurnar.