Göngum í skólann - átak sett í Laugarnesskóla

Skóli og frístund

""

Börnin í Laugarnesskóla settu átakið Göngum í skólann af stað ásamt Illuga Gunnarssyni menntamálaráðherra og Degi B. Eggertssyni borgarstjóra. Þá heilsuðu þau upp á nýjan lögreglustjóra í borginni; Sigríði Björk Guðjónsdóttur og Solla stirða kom óvænt í heimsókn. Að því loknu steðjuðu börnin á göngu út í haustsólina.   

Meginmarkmið Göngum í skólann eru að hvetja nemendur og aðstandendur þeirra til að nota vistvæna samgöngumáta; ganga, hjóla eða nota annan virkan ferðamáta til og frá skóla.

Hugur var í krökkunum í Laugarnesskóla fyrir þessu verkefni  en mörg þeirra hjóla daglega í skólann. Þau voru líka alveg með á nótunum þegar Solla stirða mætti óvænt til leiks og fóru með henni í splitt, hoppuðu og dönsuðu. Dagur B. Eggertsson borgarstjóri sýndi einnig hvað í honum býr og dansaði ballett fyrir börnin.  

Göngum í skólann er alþjóðlegt verkefni til að vekja börn og ungmenni til umhugsunar um vistvæna samgöngumáta og þá í október. Vegna aðstæðna hérlendis hefur undirbúningshópur verkefnisins ákveðið að hvetja skóla til að byrja verkefnið í september og ljúka því á alþjóðlega göngum í skólann deginum í byrjun október.

Markmið átaksins eru: 

  • Hvetja til aukinnar hreyfingar með því að auka færni barna til að ganga á öruggan hátt í skólann og fræða þau um ávinning reglulegrar hreyfingar.
  • Heilbrigður lífsstíll fyrir alla fjölskylduna: Hreyfing vinnur gegn hjartasjúkdómum, offitu og sykursýki II og stuðlar að streitulosun, betri sjálfsmynd, o.fl.
  • Minni umferð við skóla: Draga úr umferðarþunga, mengun og hraðakstri nálægt skólum. Betra og hreinna loft og öruggari og friðsælli götur og hverfi.
  • Vitundarvakning um ferðamáta og umhverfismál: Hversu ,,gönguvænt“ umhverfið er og hvar úrbóta er þörf. Samfélagsvitund eykst.
  • Kennir reglur um öryggi á göngu og hjóli. 

Háttí hundrað íslenskir skólar hafa skráð sig til leiks í þessu átaki og enn hægt að skrá sig. 

Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands hefur umsjón með þessu líflega verkefni en aðrir samstarfsaðilar eru: Samgöngustofa, Embætti Landlæknis, Ríkislögreglustjóri, mennta- og menningarmálaráðuneytið, Heimili og skóli og Slysavarnarfélagið Landsbjörg.

www.gongumiskolann.is