Nýr samstarfssamningur um rekstur skíðasvæða

Íþróttir og útivist

""

Á stjórnarfundi SSH ( Samtaka sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu ) hinn 6. janúar 2014 var undirritaður nýr samstarfssamningur um rekstur skíðasvæða höfuðborgarsvæðisins.

Aðilar að samningum eru Mosfellsbær, Reykjavíkurborg, Seltjarnarnes, Kópavogur, Garðabær og Hafnarfjörður.
Í samningnum, sem til 3 ára er fjallað um tilgang, framtíðarsýn og þau meginmarkmið sem sveitarfélögin setja sér með rekstrI skíðasvæða höfuðborgarsvæðisins í Bláfjöllum og Skálafelli.

Í samningnum er einnig sérstakt ákvæði um aðgerðir til undirbúnings að snjóframleiðslu, sem er þó háð niðurstöðum úr heildarendurskoðun vatnsverndar fyrir höfuðborgarsvæðið og áhættugreiningu vegna starfsemi skíðasvæðisins í Bláfjöllum í ljósi mögulegra áhrifa hennar á vatnsverndina.

Samhliða undirritun samningsins var jafnframt ritað undir sérstakan þjónustusamning við ÍTR um umsjón með daglegum rekstri skíðasæðanna f.h. aðildarsveitarfélaganna. Með því eru settar ákveðnari og skýrari stjórnunarlegar forsendur og ábyrgðarskilgreining á þennan rekstur.