Til baka á starfasíðu

Starfsmaður í íbúðakjarna Flókagötu 29-31

Leitum eftir jákvæðum og ábyrgum einstakling, í frábæran hóp á íbúðakjarna fyrir einstaklinga með geðfötlun. Veittur er einstaklingsmiðaður stuðningur jafnt innan sem utan heimils og unnið er út frá hugmyndafræði um sjálfstætt líf, þjónandi leiðsögn og skaðaminnkun.

Hlutastarf Íbúðakjarni Flókagötu 29-31 101
Sækja um

Unnið er eftir stefnu Reykjavíkurborgar í málefnum fatlaðs fólks. Aðalmarkmið er að efla færni einstaklinga, auka sjálfstæði, stuðla að jákvæðri sjálfsmynd og bættum lífsgæðum. Styðja við einstaklinga til að lifa sjálfstæðu lífi, halda eigin heimili, nýta stoðþjónustu og taka virkan þátt í samfélaginu. Áhersla á að virða sjálfræði einstaklinga og hafa velferð þeirra ávalt að leiðarljósi.

Fjölbreyttur vinnutími þar sem unnið er á vöktum allan sólarhringinn. Um hlutastarf er að ræða, starfshlutfall fer eftir samkomulagi.

Helstu verkefni:

  • Hvetur og styður einstaklinga til sjálfstæðs lífs með valdeflandi stuðningi.
  • Aðstoðar við athafnir daglegs lífs, heimilishald, vinnu og samfélagsþátttöku.
  • Veitir aðstoð við heilsufarslega þætti og fylgist með andlegri og líkamlegri líðan einstaklinga.
  • Styður einstaklinga við að nýta almenna þjónustu, eiga samskipti við fyrirtæki og stofnanir.
  • Hvetur til félagslegrar þátttöku, t.d. í menningu, íþróttum og tómstundum.
  • Tekur þátt í teymisvinnu, fundum og samstarfi við aðstandendur og fagaðila.
  • Skráir upplýsingar og meðhöndlar gögn í samræmi við verklag.
  • Veitir aðstoð við meðferð fjármuna í samráði við einstaklinga og stjórnendur.
  • Tekur þátt í öðrum verkefnum sem yfirmaður felur.

Hæfniskröfur:

  • Góð almenn menntun.
  • Reynsla af starfi með fötluðu fólki æskileg.
  • Viðkomandi þarf að vera 20 ára eða eldri.
  • Íslenskukunnátta á stigi B1 samkvæmt evrópska tungumálarammanum
  • Góð hæfni í mannlegum samskiptum og jákvæðni í starfi.
  • Frumkvæði, áreiðanleiki og sjálfstæði í vinnubrögðum.
  • Hæfni til að takast á við krefjandi vinnuumhverfi
  • Hreint sakavottorð í samræmi við lög sem og reglur Reykjavíkurborgar.

Upphafsdagur fer eftir samkomulagi. Laun eru samkvæmt kjarasamningum Reykjavíkurbogar og Sameykis.

Nánari upplýsingar veitir Sesselja Rán Hjartardóttir í gegnum tölvupóst, sesselja.ran.hjartardottir@reykjavik.is

Sækja um